Útgáfa

Baggalútur – Sólskinið í Dakota

borg001cd_cover_lowresSólskinið í Dakota var upphaflega gerð í tilefni af för Baggalúts á slóðir Vestur-Íslendinga vorið 2009. Skífan er að mestu byggð á kvæðum eftir vestur-íslenska kímniskáldið Káinn, Kristján Níels Júlíus (1860–1936).

Káinn bjó lengst af í Norður-Dakota og er grafinn í Þingvalla-kirkjugarðinum skammt utan við smábæinn Mountain – sem Baggalútur heimsótti einmitt í ferðinni. Hann var þekktur fyrir gamansamar vísur sínar og kvæði – þar sem kvenfólk og áfengi komu mjög við sögu.

Hljómskífan inniheldur ellefu lög. Níu við texta eftir Káinn og eitt við ljóð Stepháns G. Stephánssonar – auk þess sem ættjarðarsmellurinn Ísland, ég elska þig fær að fljóta með.

Guðmundur Pálsson og Karl Sigurðsson syngja flest laganna, en sérlegir gestasöngvarar eru þjóðargersemarnar Megas og Gylfi Ægisson. Auk þess veita Gamlir Fóstbræður liðsstyrk sinn.

Lögin eru eftir Braga Valdimar Skúlason. Ísland ég elska þig er einnig eftir Mikael Svensson og Guðm. Kristinn Jónsson.

Platan kemur út bráðlega og mun fást í verslunum og á vefsíðum. Hún er meira að segja þegar til sölu (með samviskulæsingu) á þeirra eigin vefsíðu.