Segðu ekki frá er tvöföld tónleikaplata frá Megasi & Senuþjófunum. Hér hefur verið safnað saman upptökum síðustu ára af tónleikum Megasar & Senuþjófunum. Niðurstaðan er ómetanlegt safn bestu og þekktustu laga Megasar í glæsilegum tónleikabúningi.
Lagalisti:
Diskur 1: Ég vil vera, Ábendin, Lóa Lóa, Gott er að elska, Sút fló í brjóstið inn, Heimspekilegar vangaveltur um þjóðfélagsstöðu, Ragnheiður Biskupsdóttir, Jólanáttburður, Önundur Póli, Reykjavíkurnætur, Vertu mér samferða inní blómagarðinn amma og Álafossúlpan
Diskur 2: Ég á mig sjálf (söngurinn hennar Diddu), Uppskeruhátíð, Napóleon Bekk, Freyjufár, Saga úr Sveitinni, Kvöld í Atlavík, Hold er mold, Orfeus og Evridís, Gamla gasstöðin við Hlemm, M – nótt, Tvær stjörnur, Spáðu í mig, Við sem heima sitjum #45 og Paradísarfuglinn.