Fjórða plata Hjálma kemur út á Borginni þann 20. september. Hún verður fyrst um sinn fáanleg á CD en svo er von á vinýlútgáfu af plötunni með haustinu. Platan gengur undir nafninu krókódílaplatan en heitir IV. Gaman af því.
Á plötunni eru 10 lög og hafa nokkur þeirra farið í góða útvarpspilun á síðustu misserum. Helst ber þar að nefna ofurslagarann Manstu og hið yndislega Heyrist hverjum.