Hjálmar blása til útgáfutónleika föstudaginn 9. október kl. 23 til að fagna útgáfu IV (krókódílaplatan). Miðaverða á tónleikana er 1.500 kr. og forsala þeirra er í Havarí (Austurstræti 6) og Eymundsson Austurstræti. Fjöldi gesta spila með Hjálmum á þessum viðhafnartónleikum og má þar helst telja fram blásaratríó og slagverksleikara. Öllu verður tjaldað til í hljóði og ljósum til að gera þessa tónleika að einstakri upplifun. Í tilefni af þessum tónleikum verður IV seld með 20% í öllum verslunum Eymundsson sem og Havarí fram yfir helgi.
IV er eins og nafnið gefur til kynna fjórða plata Hjálma, vinsælustu hljómsveitar Íslands, og var tekin upp í Hljóðrita og Jamaica. Heimildarmynd um frækna för Hjálmanna til fyrirheitalandsins fylgir fyrsta upplagi plötunnar. Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér eintak af þessu upplagi því platan selst eins og heitar lummur.
Tags: Hjálmar
Thursday, October 8th, 2009