Fréttir

Útgáfugleði Borgarinnar á Nasa, fimmtudagskvöld

borgin_Logo_FINAL- Hjaltalín, Hjálmar, Megas og allir hinir

Hljómplötuútgáfan Borgin hefur á rétt tæpu hálfu ári tekist að skapa sér sess sem næststærsta tónlistarútgáfa landsins. Frá því í ágúst hafa alls níu breiðskífur komið út á vegum félagsins og hafa þær allar með tölu fengið fádæma góð viðbrögð. Þessum góða árangri vilja aðstandendur Borgarinnar fagna og því fer fram mikil útgáfugleði á Nasa, næstkomandi fimmtudagskvöld. 

Þar koma fram Hjaltalín, Megas & Senuþjófarnir, Hjálmar, Baggalútur, Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar, Snorri Helgason og Berndsen, en allir þessir listamenn hafa gefið út plötur á vegum Borgarinnar á árinu.

Aðgangseyrir verður eingöngu 1000 krónur en fyrir 2000 krónur fæst aðgangur að tónleikunum og ein af plötum Borgarinnar. Allur hagnaður af tónleikunum mun renna til Fjölskylduhjálpar Íslands, og hefur Borgin sett sér það markmið að gefa að lágmarki 500.000 krónur, jafnvel þó heildarhagnaðurinn verði minni.

Borgin leitir einnig eftir fyrirtæki sem er tilbúið til að jafna þá upphæð sem mun renna til Fjölskylduhjálparinnar, og skora aðstandendur Borgarinnar á öll fyrirtæki í landinu að sýna hug sinn í verki og hjálpa til við að styrkja þær fjölskyldur sem eiga í erfiðleikum með að halda gleðileg jól.

Húsið opnar kl. 20.30 og er fólk hvatt til að mæta snemma því það verða engir aðrir en Megas & Senuþjófarnir sem stíga fyrstir á svið kl. 21.00.

Tuesday, December 8th, 2009

Tweets

No public Twitter messages.