Fréttir

Snorri Helgason semur við Borgina

borg008cd_12x12_72dpiÁ skrifstofum Borgarinnar er fagnað um þessar mundir því Snorri Helgason hefur skrifað undir samning við útgáfuna og er breiðskífa með kappanum væntanleg í verslanir 19. nóvember. Þann sama dag heldur Snorri í útgáfugleði um Ísland ásamt Hjaltalín og Sigríði Thorlacius & Heiðurspiltum.

Gripurinn nefnist I’m Gonna Put My Name on Your Door og er fyrsta sólóplata Snorra Helgasonar. Snorri er vel þekktur sem gítarleikari, söngvari og aðallagahöfundur Sprengjuhallarinnar og eftir hann liggur eitt vinsælasta lag þessa áratugar, Verum í sambandi.

Hér er hann einn á ferðinni með 11 popplög í blússkotnum og einföldum búningi. Frábærar lagasmíðar og einlægur og vandaður flutningur skilar hér plötu sem á eftir að marka spor í íslenska útgáfusögu og lifa í menningararfi þjóðarinnar um aldur og ævi, hvorki meira né minna.

Platan inniheldur meðal annars lagið Freeze Out sem hefur notið mikilla vinsælda á öldum ljósvakans síðan snemmsumars. Nú er jafnframt komið nýtt lag í spilun. Lagið heitir Don’t Let Her og var tekið upp “live” (þ.e.a.s. spilað inn og sungið á sama tíma) í Hljóðrita í Hafnafirði í september síðastliðnum.

Upptökum á plötunni var stýrt af Kristni Gunnari Blöndal og Styrmi Haukssyni og meðal þeirra er lögðu hönd á plóg voru Kristinn Gunnar Blöndal, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Teitur Magnússon og Sigurður Tómas Guðmundsson.

Don't Let Her Kover_V1

Tuesday, November 10th, 2009

Tweets

No public Twitter messages.