Fréttir

Lover in the Dark með Berndsen komin í verslanir!

Berndsen _Cover.aiDavíð Berndsen er ungur tónlistarmaður sem kallar sig Berndsen. Þrátt fyrir ungan aldur lifir Berndsen í fortíðinni með að sækjast í hina fallegu 80´s tóna.

Verkefnið tók að þróast í Hollandi, en þar lærði Berndsen hljóðtækni ásamt tónlistarmanninum Hermigervli. Berndsen sankaði síðan að sér hinum ýmsu aðstoðarmönnum og eftir um eins og hálfs árs meltingu varð loksins til breiðskífa að nafni Lover in the Dark. Platan var unnin í mjög nánu samstarfi við Hermigervil – eða allt að því óeðlilega nánu, sem skilar sér mjög vel í tónlistinni.

Platan inniheldur eðalpopp undir sterkum áhrifum 80´s synthapopptónlistar, og er samanburður við sveitir á borð við O.M.D, Ultravox, Pet Shop Boys og fleiri góðar óhjákvæmilegur.

Meðal laga á plötunni eru t.d. Supertime og Lover in the Dark en bæði þessi lög hafa fengið mikla athygli á öldum ljósvakans, en ekki síður á netinu því myndböndin við lögin hafa logað eins og eldur um sinu á síðum eins og Facebook og YouTube.

Platan er jafnframt síðasta breiðskífan fyrir þessi jól á vegum Borgarinnar.

Tags:

Tuesday, December 15th, 2009

Tweets

No public Twitter messages.