Fréttir

Hjálmar -IV í verslanir og tónleikar á fimmtudag

borg004cd_cover72dpiLopapeysureggíhljómsveitin Hjálmar frá Keflavík hefur sent frá sér sína fjórðu breiðskífu. Platan nefnist einfaldlega IV eða Fjórir en þó gengur hún undir nafninu Krókódílaplatan sökum stærðarinnar krókódíls sem prýðir forsíðu plötuumslagsins.

Óhætt er að fullyrða að sjaldan hefur jafn mikil eftirvænting ríkt fyrir útgáfu nýrrar Hjálmaplötu enda hafa nú þegar fjöldamörg lög af henni hlotið mikla útvarsspilun. Má þar t.d. nefna Manstu, Þá mun vorið vaxa, Heyrist hverjum og Það sýnir sig. Það vakti einnig miklar eftirtekt að sveitin hélt alla leið á heimaslóðir reggísins á Jamaíka til að vinna plötuna. Heimsóttu piltarnir hljóðverin Tuff Gong og Harry J Studio auk þess að fá til liðs við sig ýmsa þaulreynda innfædda tónlistarmenn.

Óhætt er að fullyrða að Jamaíkaferðin skilar sér beint í tónlistarslagæð plötunnar því hún er án vafa gleðilegasta og bjartasta hljómplata Hjálma til þessa. Í raun má fullyrða að Krókódílaplatan sé hreinræktaðasta reggíafurð Hjálma.

Hinn séríslenskur keimur Hjálma er þó enn til staðar, því platan var einnig að miklum hluta unnin í Hljóðrita í Hafnarfirði. Keflavískt Jamaíkureggí með hafnfirskum brag er því kannski ekki svo fjarri lagi.

Ekki má heldur gleyma heimildarmyndinni um ferð Hjálma til Jamaíka, Hærra ég og þú, eftir Bjarna Grímsson og Frosta Runólfsson. Myndin var sýnd við góðar undirtektir í Austurbæ fyrir nokkru og einnig er myndin sýnd á RIFF sem nú stendur yfir. DVD-útgáfa af myndin mun fylgja fyrsta upplagi plötunnar og verður því fáanleg í takmörkuðu upplagi.

Hjálmar ætla að fagna útgáfunni með tónleikum sínum á Réttum á morgun, fimmtudagskvöld en þar troða þeir upp á Nasa, ásamt Megasi & Senuþjófunum og Dr. Gunna. Formleg útgáfugleði verður loks á Nasa á næstunni.

Tags:

Wednesday, September 23rd, 2009