Hljómsveitirnar múm og Seabear hafa verið uppteknar við tónleikahald í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu það sem af er þessu ári. Nú í desember halda sveitirnar sameiginlega tónleika í Reykjavík þar sem múm fagnar útgáfu breiðskífu sinnar Sing Along to Songs that You Don’t Know og Seabear mun leika nýtt og eldra efni.
Liðin eru ár og öld síðan að hljómsveitin múm hélt tónleika í Reykjavík. Ef frá eru talin þau örfáu skipti sem sveitin hefur komið fram á tónlistarhátíðum, og að hita upp á endurkomu Sykurmolanna, eru þetta fyrstu eiginlegu tónleikar hljómsveitarinnar á landinu í fimm ár – eða síðan sveitin hélt eftirminnilega tónleika þann 20.desember 2004 í Íslensku Óperunni.
Í ágúst gaf múm út hljómplötuna Sing Along to Songs You Don’t Know sem fengið hefur sérstaklega góða dóma og viðtökur víðsvegar um heiminn. Síðan að platan kom út hefur hljómsveitin verið á hljómleikaferðalagi og spilað yfir 70 tónleika í Evrópu, Norður Ameríku og Asíu og kemur til að slá botninn í heimsreisunni með tónleikum í Iðnó þann 18. desember.
Af Seabear er það að frétta að hún mun snemma á næsta ári senda frá sér sína aðra breiðskífu, en henni hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu eða allt frá því að frumburður sveitarinnar, The Ghost That Carried Us Away, kom út árið 2007.
Miðaverð verður sérstaklega stillt í hóf á tónleika þessara kanóna í íslensku tónlistarsenunni en aðgangseyrir verður eingöngu 2700 krónur.
Tónleikarnir fara eins og áður segir fram í Iðnó, föstudagskvöldið 18. desember og opnar húsið kl. 21. Miðasala fer fram á midi.is - http://midi.is/tonleikar/1/5797 – og í verslunum Skífunnar.
Fólk er hvatt til að tryggja sér miða fljótt og örugglega enda ekki margir miðar í boði.
Dómar um Sing Along to Songs You Don’t Know
**** Fréttablaðið // “Sing Along er ólík fyrri plötum múm, bæði fjölbreyttari og poppaðri. Best íslenska platan á árinu hingað til.”
***1/2 Morgunblaðið
**** Mojo // “arguably a career peak.”
**** Times // “The listening experience evokes a pleasurable sadness that soothes and disorientates.”
**** The Independent // “Iceland’s dream-scapists fifth album delivers discreetly dark magic. Strangeness and charm colour their twinkling, lo-fi sounds and haunting melodies: they sculpt worlds of their own. But a sense of danger shades the album, innocence and experience suspended in often spell-binding balance.”
8/10 Clash // “múm have produced an innately beautiful record, again proving that experimental songwriting is far from dead.”
The Observer // “Effortlessly blending haunting harmonies with electronica, percussion, strings, piano and even parakeets chirping, the collective has produced a richer and more accesible album than previous efforts. Aglow with creative energy and eccentricity, this is beautiful stuff”
*** Q Magazine // “Their masterstroke is to offset the the “difficult” percussion with lush, vocal harmonies and dreamy folk pastoralism. The result is a delicate, but compelling balance of rough and smooth”
*** The Guardian // “It’s a sweet hotpot of of northern European record-making.”
Thursday, December 3rd, 2009