Verslunin HAVARÍ opnar laugardaginn 19. september kl. 13 að Austurstræti 6 (Milli Gyllta kattarins og Shalimar). Búðin mun opna með miklu havaríi og hefja forsölu á nýjustu breiðskífu Hjálma, IV.Léttar og karabískar veitingar verða á boðstólnum auk þess sem Hjálmarnir sjálfir kíkja í heimsókn, taka lagið og árita nokkur eintök. Ýmis tilkippileg tilboð verða í gangi á opnunardegi á geisladiskum og vínylplötum frá Kimi Records og Borginni, fatnaði og fleira. Verslunar- og menningarglaðir borgarbúar ættu því að gera sér far um bregða sér í bæinn og njóta góðrar stundar í HAVARÍ.
Havarí er samstarfsvettvangur fjögurra fyrirtækja á sviði tónlistar og hönnunar, Kimi Records, Borgin hljómplötur, Gogoyoko og Skakkapopp. Þar mun að sjálfsögðu fást tónlist, tónlistartengdur varningur, myndlist, veggspjöld, fatnaður og annað sem verslunarstjórum dettur í hug að bjóða upp á. Búðin verður opin fram að jólum og mun standa fyrir allskyns viðburðum, tónleikum, sýningum og fleira.
IV Hjálmanna verður einnig í forsölu nú um helgina í 12 tónum og Eymundsson á Akureyri.
Friday, September 18th, 2009