Eftir tólf ár í hringiðu myndlistarinnar á meginlandi Evrópu kemur Egill Sæbjörnsson heim með sína fyrstu, stóru sýningu sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudag kl. 17. Á sama tíma verður opnuð sýning Ryans Parteka í D-salnum. Sýningarnar standa báðar til 3. janúar 2010.
Undanfarnar vikur hefur Egill verið áberandi vegna útkomu geisladisksins Egill S og á næstu dögum mun glæsileg bók um listamanninn prýða hillur bókaverslana bæjarins.
Egill er einn þeirra listamanna sem sýnir á Carnegie Art Award 2010 en hann hefur verið afkastamikill í sýningahaldi og gjörningagerð á undanförnum árum. Fyrr á þessu ári var sýndur samtímis í Þýskalandi og Frakklandi þáttur á hinni virtu sjónvarpsstöð Arte um Egil og framundan bíða hans sý ningar í virtum listastofnunum á borð við Frankfurther Kunstverein, Göttingen Kunstverein og víðar.
Samhliða sýningu Egils í Hafnarhúsinu verður á dagskrá fjölbreyttir viðburðir sem tengjast hinum ólíku miðlum sem Egill vinnur í. Má þar nefna listamannsspjall Egils við Karolin Tampere 5. nóvember, en Karolin hefur víða getið sér gott orðspor fyrir sýningarstjórn og umsjón með listaverkum á opinberum svæðum. Listamannsspjallið er unnið í samvinnu við Sequences gjörningahátíðina og það sama er að segja um gjörninginn The Mind sem Egill fremur í samvinnu við Marcia Moraes. Um miðjan desember standa Listasafn Reykjavíkur og hljómplötuútgáfan Borgin fyrir tónleikum í Hafnarhúsinu þar sem Egill kemur fram með mörgum þekktum tónlistarmönnum.
STAÐARANDI OG FRÁSÖGN
Á sýningu Egils Sæbjörnssonar í Hafnarhúsinu er lögð áhersla á frásögnina í verkum hans. Sýnd verða verk sem unnin hafa verið frá árinu 2006 með áherslu á samtal persóna eða hluta sem fela í sér eins konar framvindu eða tíma. Staðir og hlutir búa yfir lífi sem birtast innan eða utan veggja sýningarýmis við nærveru manneskjunnar. Með þekkingu sinni varpar manneskjan merkingu á það sem á vegi hennar verður. Egill notar gjarnan tónlist í verkum sínum og gjörningum, en á sýningunni bregður fyrir lögum og brotum úr lögum á nýútkomnum geisladiski Egils. Egill býr og starfar í Berlín.
Sjá hér nánar um Egil og verk hans: i8 gallery og Grusenmeyer Art Gallery.
Tags: Egill S
Monday, October 26th, 2009