Fréttir

December 15th, 2009

Lover in the Dark með Berndsen komin í verslanir!

Berndsen _Cover.aiDavíð Berndsen er ungur tónlistarmaður sem kallar sig Berndsen. Þrátt fyrir ungan aldur lifir Berndsen í fortíðinni með að sækjast í hina fallegu 80´s tóna. lesa meira »

December 9th, 2009

IV í GULL! – Hjálmar í HAVARÍ kl. 17 fimmtudag

borg004cd_cover_HRFjórða plata Hjálma hefur nú selst í yfir 5000 eintökum og af þeim sökum verður meðlimum sveitarinnar afhent gullplatan í versluninni Havarí fimmtudaginn 10. desember kl. 17. Piltarnir munu einnig taka lagið til að fagna áfanganum. lesa meira »

December 8th, 2009

Útgáfugleði Borgarinnar á Nasa, fimmtudagskvöld

borgin_Logo_FINAL- Hjaltalín, Hjálmar, Megas og allir hinir

Hljómplötuútgáfan Borgin hefur á rétt tæpu hálfu ári tekist að skapa sér sess sem næststærsta tónlistarútgáfa landsins. Frá því í ágúst hafa alls níu breiðskífur komið út á vegum félagsins og hafa þær allar með tölu fengið fádæma góð viðbrögð. Þessum góða árangri vilja aðstandendur Borgarinnar fagna og því fer fram mikil útgáfugleði á Nasa, næstkomandi fimmtudagskvöld.  lesa meira »

December 3rd, 2009

Heimkomutónleikar múm

mm092_12x12_lowresHljómsveitirnar múm og Seabear hafa verið uppteknar við tónleikahald í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu það sem af er þessu ári. Nú í desember halda sveitirnar sameiginlega tónleika í Reykjavík þar sem múm fagnar útgáfu breiðskífu sinnar Sing Along to Songs that You Don’t Know og Seabear mun leika nýtt og eldra efni.

lesa meira »

November 10th, 2009

Snorri Helgason semur við Borgina

borg008cd_12x12_72dpiÁ skrifstofum Borgarinnar er fagnað um þessar mundir því Snorri Helgason hefur skrifað undir samning við útgáfuna og er breiðskífa með kappanum væntanleg í verslanir 19. nóvember. Þann sama dag heldur Snorri í útgáfugleði um Ísland ásamt Hjaltalín og Sigríði Thorlacius & Heiðurspiltum. lesa meira »

October 26th, 2009

Egill Sæbjörnsson opnar sýningu í Listasafni Reykjavíkur

egills-highresEftir tólf ár í hringiðu myndlistarinnar á meginlandi Evrópu kemur Egill Sæbjörnsson heim með sína fyrstu, stóru sýningu sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudag kl. 17. Á sama tíma verður opnuð sýning Ryans Parteka í D-salnum. Sýningarnar standa báðar til 3. janúar 2010.

Undanfarnar vikur hefur Egill verið áberandi vegna útkomu geisladisksins Egill S og á næstu dögum mun glæsileg bók um listamanninn prýða hillur bókaverslana bæjarins. lesa meira »

October 8th, 2009

Útgáfutónleikar Hjálma á NASA

borg004cd_cover72dpiHjálmar blása til útgáfutónleika föstudaginn 9. október kl. 23 til að fagna útgáfu IV (krókódílaplatan). Miðaverða á tónleikana er 1.500 kr. og forsala þeirra er í Havarí (Austurstræti 6) og Eymundsson Austurstræti. lesa meira »

September 23rd, 2009

Hjálmar -IV í verslanir og tónleikar á fimmtudag

borg004cd_cover72dpiLopapeysureggíhljómsveitin Hjálmar frá Keflavík hefur sent frá sér sína fjórðu breiðskífu. Platan nefnist einfaldlega IV eða Fjórir en þó gengur hún undir nafninu Krókódílaplatan sökum stærðarinnar krókódíls sem prýðir forsíðu plötuumslagsins.

lesa meira »

September 18th, 2009

Forsala á IV í HAVARÍ

borg004cd_cover72dpiVerslunin HAVARÍ opnar laugardaginn 19. september kl. 13 að Austurstræti 6 (Milli Gyllta kattarins og Shalimar). Búðin mun opna með miklu havaríi og hefja forsölu á nýjustu breiðskífu Hjálma, IV. lesa meira »

September 12th, 2009

Hjálmar IV kemur út 21. sept

borg004cd_cover72dpiFjórða plata Hjálmanna kemur í verslanir mánudaginn 21. sept. Heimildamynd um Jamaica ferð piltanna fylgir með á DVD. Óþreyjufullir aðdáendur geta keypt plötuna nú strax á niðurhali hjá Gogoyoko. Það eina sem þarf að gera er að smella á hlekkinn hér fyrir ofan.

Newer Entries »