Davíð Berndsen er ungur tónlistarmaður sem kallar sig Berndsen. Þrátt fyrir ungan aldur lifir Berndsen í fortíðinni með að sækjast í hina fallegu 80´s tóna. lesa meira »
Davíð Berndsen er ungur tónlistarmaður sem kallar sig Berndsen. Þrátt fyrir ungan aldur lifir Berndsen í fortíðinni með að sækjast í hina fallegu 80´s tóna. lesa meira »
Fjórða plata Hjálma hefur nú selst í yfir 5000 eintökum og af þeim sökum verður meðlimum sveitarinnar afhent gullplatan í versluninni Havarí fimmtudaginn 10. desember kl. 17. Piltarnir munu einnig taka lagið til að fagna áfanganum. lesa meira »
- Hjaltalín, Hjálmar, Megas og allir hinir
Hljómplötuútgáfan Borgin hefur á rétt tæpu hálfu ári tekist að skapa sér sess sem næststærsta tónlistarútgáfa landsins. Frá því í ágúst hafa alls níu breiðskífur komið út á vegum félagsins og hafa þær allar með tölu fengið fádæma góð viðbrögð. Þessum góða árangri vilja aðstandendur Borgarinnar fagna og því fer fram mikil útgáfugleði á Nasa, næstkomandi fimmtudagskvöld. lesa meira »
Hljómsveitirnar múm og Seabear hafa verið uppteknar við tónleikahald í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu það sem af er þessu ári. Nú í desember halda sveitirnar sameiginlega tónleika í Reykjavík þar sem múm fagnar útgáfu breiðskífu sinnar Sing Along to Songs that You Don’t Know og Seabear mun leika nýtt og eldra efni.
Á skrifstofum Borgarinnar er fagnað um þessar mundir því Snorri Helgason hefur skrifað undir samning við útgáfuna og er breiðskífa með kappanum væntanleg í verslanir 19. nóvember. Þann sama dag heldur Snorri í útgáfugleði um Ísland ásamt Hjaltalín og Sigríði Thorlacius & Heiðurspiltum. lesa meira »
Eftir tólf ár í hringiðu myndlistarinnar á meginlandi Evrópu kemur Egill Sæbjörnsson heim með sína fyrstu, stóru sýningu sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudag kl. 17. Á sama tíma verður opnuð sýning Ryans Parteka í D-salnum. Sýningarnar standa báðar til 3. janúar 2010.
Undanfarnar vikur hefur Egill verið áberandi vegna útkomu geisladisksins Egill S og á næstu dögum mun glæsileg bók um listamanninn prýða hillur bókaverslana bæjarins. lesa meira »
Hjálmar blása til útgáfutónleika föstudaginn 9. október kl. 23 til að fagna útgáfu IV (krókódílaplatan). Miðaverða á tónleikana er 1.500 kr. og forsala þeirra er í Havarí (Austurstræti 6) og Eymundsson Austurstræti. lesa meira »
Lopapeysureggíhljómsveitin Hjálmar frá Keflavík hefur sent frá sér sína fjórðu breiðskífu. Platan nefnist einfaldlega IV eða Fjórir en þó gengur hún undir nafninu Krókódílaplatan sökum stærðarinnar krókódíls sem prýðir forsíðu plötuumslagsins.
Verslunin HAVARÍ opnar laugardaginn 19. september kl. 13 að Austurstræti 6 (Milli Gyllta kattarins og Shalimar). Búðin mun opna með miklu havaríi og hefja forsölu á nýjustu breiðskífu Hjálma, IV. lesa meira »
Fjórða plata Hjálmanna kemur í verslanir mánudaginn 21. sept. Heimildamynd um Jamaica ferð piltanna fylgir með á DVD. Óþreyjufullir aðdáendur geta keypt plötuna nú strax á niðurhali hjá Gogoyoko. Það eina sem þarf að gera er að smella á hlekkinn hér fyrir ofan.