Listamenn

Sigríður Thorlacius

4478Sigríður Thorlacius hefur undanfarið sungið sig inn í hjörtu landsmanna, aðallega með hljómsveitinni Hjaltalín en einnig Megasi og Björgvini Halldórssyni. Hennar fyrsta eiginlega breiðskífa, Á Ljúflingshól, er því eitthvað sem margir hafa beðið lengi eftir.Upptökur á plötunni fóru fram í Hljóðrita en þeim stýrði Sigurður Guðmundsson, oft kenndur við Hjálma. Sigurður er einnig hluti af hljómsveitinni Heiðurspiltar sem sér um undirspil á hljómsveitinni. Sigurður leikur á hljómborð ýmis konar og syngur, en aðrir Heiðurspiltar eru Daníel Friðrik Böðvarsson á gítar, Guðmundur Óskar Guðmundsson sem plokkar bassann og Magnús Trygvason Eliassen er lemur húðir. Margir góðir gestir koma einnig fram á plötunni og má þar t.d. nefna sjálfan Bogomil Font.

Á Ljúflingshól er samansafn laga Jóns Múla Árnasonar, við texta bróður hans, Jónasar Árnasonar, sem mörg hver eru löngu orðin að perlum í íslenskri dægurlagasögu, líkt og Fröken Reykjavík. Einnig má nefna þekkt lög á borð við Í hjarta þér, Sjómenn íslenskir erum við, Söngur Djáknans og Ljúflingshóll. Hins vegar er einnig að finna á plötunni lagið Kavatína Kristínar sem aldrei hefur verið tekið upp í hljóðveri fyrr en nú.

Platan er gefin út af Skruddu ehf. í samvinnu við Borgina – hljómplötuútgáfu.