Listamenn

Egill Sæbjörnsson

egills_promoEgill Sæbjörnsson er tónlistarmaður og myndlistarmaður. Hann hefur lengi verið tregur til að viðurkenna að hann sé tónlistarmaður og skýtur fyrir sig þeirri afsökun að það sé bara áhugamál.

Hann hefur þó gefið út nokkrar plötur í gegn um tíðina en þekktust af þeim er hljómplatan Tonk of the lawn sem gefin var út af hinu merkilega útgáfufyrirtæki Smekkleysu fyrir nokkrum árum. Margir kannast við lagið “I love you so” sem var hluti af bílaauglýsingu og var í kjölfarið talsvert spilað í útvarpi á íslandi. Egill hefur búið í tíu ár í Berlín og má segja að áhrif sé að finna í verkum hans þaðan sem og frá uppvaxtarborg hans Reykjavík. Lögin eru blanda af ýmsum stílum og stefnum en hafa yfir sér persónulegt yfirbragð sem leynist eins og rauður þráður á milli einstakra laga. Á þessari nýju plötu eru 10 lög sem tekin voru upp af Sigurði Guðmundssyni og Guðmundi “Kidda” Jónssyni í Hljoðrita í Hafnarfirði. Auk þess sem drífandi afl á bak við upptökurnar voru 2/3 gömlu félagarnir úr FLÍS þeir Helgi Svavar Helgason trymbill og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari. Gamall félagi Egils úr sambræðingi myndlistar og tónlistar Áki Ásgeirsson kom með smá innskot af hljóðum úr alls kyns plaströrum og dótaríi auk hefðbundnari blásturshljóðfæra á borð við flautur og trompet. Guðmundur Pétursson gítarleikarinn góðkunni rak inn nefið öðru hverju og laumaði inn gítarfrösum. Platan var forhljóðblönduð af Janzoulu í Phonojet hljóðverinu í Berlín en svo fullunnin í félögunum í Hljóðrita. Margir segja að þetta sé áhugavert framhald plötunnar Tonk of the lawn. Sú plata var tekin að mestu upp í heimahúsi og svo hljóðblönduð og coproduceruð af Valgeiri Sigurðssyni í Gróðurhúsinu og spilaði Egill þar á nær öll hljóðfæri sjálfur. Þessi nýja plata var tekin alfarið upp í hljóðveri af hljómsveit og er þetta fyrsta hljómplatan sem Egill tekur upp á þann hátt.