Baggalútur er rótgróið framleiðslufyrirtæki í íslenskum menningar- og afþreyingargeira, sem sérhæfir sig í heildarlausnum á sviði þjóðlegrar hámenningar og alþýðlegrar skemmtunar. Félagið starfrækir m.a. sívinsæla hljómsveit, þjóðþekkt vefsvæði, framsækna útvarps- og sjónvarpsdeild, metnaðarfullt skáldsagna- og fræðibókasvið auk þess sem það heldur úti öflugu starfsmannafélagi.
Hljóðverkadeild Baggalúts hefur sent frá sér hljómskífurnar Pabbi þarf að vinna, Aparnir í Eden, Jól & blíða, Nýjasta nýtt og nú síðast Sólskinið í Dakota. Hafa þessi verk hlotið vinsamlegar viðtökur, sanngjarna gagnrýni og fjölmargar viðurkenningar. Hljómsveitin sjálf, sem skipuð er mörgum valinkunnustu listamönnum þjóðarinnar, nýtur almennrar hylli, faglegrar virðingar og viðurkenningar alþjóðasamfélagsins.
—
SÓLSKINIÐ Í DAKOTA
Sólskinið í Dakota var upphaflega gerð í tilefni af för Baggalúts á slóðir Vestur-Íslendinga vorið 2009. Skífan er að mestu byggð á kvæðum eftir vestur-íslenska kímniskáldið Káinn, Kristján Níels Júlíus (1860–1936).
Káinn bjó lengst af í Norður-Dakota og er grafinn í Þingvalla-kirkjugarðinum skammt utan við smábæinn Mountain – sem Baggalútur heimsótti einmitt í ferðinni. Hann var þekktur fyrir gamansamar vísur sínar og kvæði – þar sem kvenfólk og áfengi komu mjög við sögu.
Hljómskífan inniheldur ellefu lög. Níu við texta eftir Káinn og eitt við ljóð Stepháns G. Stephánssonar – auk þess sem ættjarðarsmellurinn Ísland, ég elska þig fær að fljóta með.
Guðmundur Pálsson og Karl Sigurðsson syngja flest laganna, en sérlegir gestasöngvarar eru þjóðargersemarnar Megas og Gylfi Ægisson. Auk þess veita Gamlir Fóstbræður liðsstyrk sinn.
Lögin eru eftir Braga Valdimar Skúlason. Ísland ég elska þig er einnig eftir Mikael Svensson og Guðm. Kristinn Jónsson.