Borgin: Um okkur

Borgin hljómplötur er flunkuný plötuútgáfa í eigu Steinþórs Helga, Guðmundar Kristins og Baldvins Esra. Koma þeir úr ólíkum áttum en hafa þó allir starfað innan tónlistar og útgáfugeirans undanfarin ár með prýðilegum árangri.

Meðal listamanna sem eru á mála hjá Borginni eru Hjálmar, Megas & Senuþjófarnir, Baggalútur, Hjaltalín, Sigríður Thorlacius, Egill Sæbjörnsson og fleiri og fleiri.

Afkimi ehf sér um dreifingu á útgefnu efni Borgarinnar:

e: distribution@kimirecords.net

s: 696-8182

Borgin, Afkimi ehf eru til húsa í Vonarstræti 4, 101 RVK